Robus sturtuvagnar eru frá Palmse Trailer, sama framleiðanda og Palmse vagnar. Robus eru sturtuvagnar sem eru sérhannaðir fyrir jarðefnisflutninga og pallurinn hefur lögun eins og hálft rör til að koma í veg fyrir að efni setjist í hliðarnar eins og á ferköntuðum palli.
Vagnar eru fáanlegir í mörgum stærðum. Sjá mál á vögnum hér
Hægt er að fá vagnana með radialdekkjum. Einnig er hægt að velja um útfærslur á afturhlera og vagnarnir eru fáanlegir með hardox stáli í botni og hliðum.
Við höfum samið við framleiðendur Palmse vagna um að framleiða kornvagna sem eru styrktir til að þeir henti til alhliða flutninga.
Styrkingin felst í að minna bil er á milli þverrifja í botninum eða um 350 mm. Yfir hjólunum er lögð 6 mm stálplata undir botnplötuna.
Vagnarnir eru tveggja hásinga með vökvabremsum á öllum hjólum. Hægt er að fá vagnana bæði með og án upphækkanna.
Þeir fást í tveimur stærðum.
Skilmálar
Velkomin á vefsíðu Búvís. Þessi síða notar vafrakökur (cookies) til að tryggja bestu mögulega upplifun notenda. Með því að halda áfram að heimsækja vefsíðu samþykkir þú söfnun af vafrakökur.